Ráðgjafar ARCUR vinna með skipulögðum aðferðum að greiningum og lausnum sem taka mið af markmiðum og aðstæðum hvers viðskiptavinar. Við skilum ekki aðeins skýrslum – við viljum að niðurstöður verkefna skili sér í framkvæmd og breytingum.
Skýr stefna er undirstaða árangurs. ARCUR vinnur með fyrirtækjum og opinberum aðilum í stefnumótun sem styður við forgangsröðun og framkvæmd. Okkar aðferðafræði tryggir að stefnan verði ekki aðeins skjal heldur leiðarvísir fyrir daglegar ákvarðanir.
Ráðgjafar ARCUR hafa víðtæka reynslu af fjármálagreiningum, fjárhagsáætlanagerð, verðmötum og fjármálatengdri ráðgjöf. Við vinnum að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum með fyrirtækjum og opinberum aðilum – frá greiningu til ákvarðanatöku.
Breytingar krefjast skýrrar verkefnisstjórnunar og samvinnu. Hjá ARCUR starfa verkefnastjórar með áralanga reynslu af stjórnun umbótaverkefna, sameiningum rekstrareininga og öðrum breytingum sem krefjast umfangsmikillar skipulagningar.
Stöðutaka í rekstri eða stjórnsýslu. ARCUR gerir úttektir sem gefa heildstæða mynd af rekstri, fjárhagslegri stöðu og lykilferlum. Við greinum styrkleika og veikleika og leggjum fram skýrar tillögur að úrbótum.
Gott skipulag er ósýnilegt – það virkar bara. ARCUR greinir og endurhannar stjórnskipulag og verkferla svo ábyrgð sé skýr, ákvarðanir hraðar og reksturinn einfaldari – hvort sem það er fyrir fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög.
Kortlagning á fasteignamarkaði og tækifærum sem veita stjórnendum skýra innsýn. ARCUR hefur þróað aðferðir sem gagnast fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum til að taka upplýstar ákvarðanir sem byggja á gögnum og ólíkum sviðsmyndum.
Stærstu hindrunin í breytingum er oft ekki tæknin eða ferillinn — heldur fólkið. Við hjálpum þér að stjórna breytingum þannig að þær festist í sessi og skapi raunveruleg áhrif í stað þess að vera verkefni á blöðum.
Hafa samband ↗