ARCUR hefur langa og víðtæka reynslu af fjármögnun, bæði með lánsfé og eigin fé. Við aðstoðum fyrirtæki og opinbera aðila við fjármögnun sem hentar aðstæðum hvers verkefnis. Net tengiliða og sérfræðiþekking á íslenskum fjármálamarkaði er okkar helsti styrkur.
ARCUR aðstoðar við kaup og sölu fyrirtækja (M&A) og öflun hlutafjár, hvort sem um er að ræða nýsköpunarfyrirtæki eða rótgróin fyrirtæki. Við skipuleggjum ferlið, tengjum saman aðila og tryggjum fagleg vinnubrögð.
Skuldabréf geta verið hagkvæm fjármögnun. Við útfærum lánsfjármögnun í samræmi við þarfir og aðstæður hvers verkefnis hvort sem það er framkvæmdafjármögnun, brúarfjármögnun eða langtímafjármögnun.
Arcur hefur upp byggt víðtækt net fjárfesta — lífeyrissjóði, einkafjárfesta og stofnanafjárfesta. Við vitum hvers þeir leita og hvernig á að kynna verkefni á þann hátt sem skapar traust og áhuga.
Hafa samband ↗