Reynsla ráðgjafa ARCUR nær yfir áratugi og hana viljum við nýta fyrir okkar viðskiptavini. Við trúum því að besta ráðgjöfin sé sú sem skilar raunverulegum árangri — ekki bara skýrslum.
Arnar hefur sinnt ráðgjafastörfum fyrir fjölda fyrirtækja, ráðuneyta og stofnana á sviði stefnumótunar og rekstrar og starfað við ráðgjöf nærri samfellt frá 2007. Áður starfaði hann hjá Capacent, ParX – viðskiptaráðgjöf IBM, forsætisráðuneyti og sem forstöðumaður viðskiptaþróunar Advania. Hann hefur leitt eða tekið þátt í á fjórða tug stefnumótunar- og breytingaverkefna. M.Sc. frá Edinborgarháskóla, M.A. frá Háskóla Íslands, C-vottaður verkefnastjóri.
Halldór er lögfræðingur og hefur starfað á sviði ráðgjafar frá PwC árið 2001, lengst af sem eigandi og sviðsstjóri fyrirtækjaráðgjafar. Á árunum 2017–2020 var hann framkvæmdastjóri Capacent á Íslandi — þá stærsta sjálfstæða ráðgjafafyrirtæki landsins. Hann hefur leitt fjölmörg verkefni þar sem ólíkir hagsmunir koma saman, mörg þeirra varðandi stærstu félög landsins. Halldór starfaði einnig hjá fjármálaráðuneytinu.
Sigurður er verkfræðingur og hefur starfað samfellt á fjármálamarkaði frá árinu 1998. Hann var yfir eignastýringu fagfjárfesta hjá Kaupþingi og byggði upp sérhæfða eignastýringu hjá ALM Verðbréfum 2011–2017. Frá 2018 hefur hann starfað sjálfstætt og komið að fjármögnun fjölda verkefna — framkvæmdafjármögnun fasteignaverkefna, brúarfjármögnun, fyrirtækjafjármögnun og öflun hlutafjár.
Þröstur er viðskiptafræðingur (cand.oecon, MSc. fjármál) og tilnefndur sérfróður meðdómari við Landsrétt 2019–2024. Hann hefur starfað hjá Capacent, PwC, ParX og IBM, sem framkvæmdastjóri Farice hf., framkvæmdastjóri samruna og yfirtöku hjá Landic Property og sveitarstjóri. Sérsvið hans snúa að fjármálum fyrirtækja, framkvæmdafjármögnun, fjárhagslegri endurskipulagningu, verðmötum og stefnumótun.
Reynsla ráðgjafa ARCUR nær yfir áratugi í innviðum, fjármögnun og stefnumótun. Við höfum tekið þátt í stærstu verkefnum íslensks atvinnulífs og vitum hvað þarf til að fara úr hugmynd í framkvæmd. Það er sú þekking sem við setjum í þjónustu viðskiptavina okkar.
Hafa sambandDÆMI UM VIÐSKIPTAVINI