Ölfusárbrú er ekki bara mannvirki — hún er dæmisaga um hvernig einkaaðilar, opinberir aðilar og lífeyrissjóðir geta mæst í verkefni og látið hlutina gerast.
Stór innviðaverkefni eru ekki "bara framkvæmd" – þau eru samspil hönnunar, verkfræði, leyfa, áhættustýringar, útboða, fjármögnunar og framkvæmdastjórnunar svo eitthvað sé nefnt. Áhættan er margþætt: tæknileg, rekstrarleg, fjárhagsleg og samhæfing ýmisskonar.
Í umræðu um fyrirkomulag innviðafjármögnunar hefur jafnframt komið fram að horft sé til mannvirkja sem geta verið tekjuberandi og er Ölfusárbrú nefnd í því samhengi.
Þegar verkefni eru orðin nógu stór og flókin skiptir mestu að tengja saman rétta aðila: hönnun og verkfræðilega dýpt, framkvæmdareynslu, fjármögnunarþekkingu, skýra stjórnun og ábyrgðaraðila.
Bygging nýrrar brúar yfir Ölfusá er hluti af heildarverkefni sem miðar að því að færa Hringveginn út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Samkvæmt Vegagerðinni felur verkið m.a. í sér 330 metra brú, 3,7 km nýjan hringveg og um 1 km tengivegi, ásamt nýjum vegamótum og undirgöngum sem bæta flæði og öryggi fyrir bílaumferð og virka ferðamáta — og hestamenn. Brúin er jafnframt hönnuð til að bera lykilinnviði veituaðila: rafmagn, ljósleiðara, heitt og kalt vatn.
Þetta sýnir vel hvers vegna brúarframkvæmd er í raun "fjölinnviða" verkefni: hún er samtímis samgöngumannvirki og burðarás fyrir mikilvægar lagnir og þjónustu.
Innviðaverkefni er sérstakt áhugamál hjá Arcur, einfaldlega af því að við viljum gera gott samfélag betra og þörfin er gríðarlega. Við finnum leiðir til að gera flókin verkefni einföld — eins og við segjum: "leyfðu okkur að einfalda flókið."
Í gegnum samstarfsvettvang Innviðafélags Íslands, sem er í rekstri Arcur sjóða, tryggðu lífeyrissjóðir stóran hluta af fjármögnun verkefnisins. Þetta er stærsta innviðaverkefni á sviði samgangna sem lífeyrissjóðir hafa komið að frá byggingu Hvalfjarðarganga. Við finnum fyrir miklum vilja lífeyrissjóða til að koma að uppbygingu innviða á Íslandi — og þetta er bara byrjunin á því sem koma skal.
Hefurðu áhuga á sambærilegu verkefni?
Hafa samband